Nýr forstjóri Fangelsismálastofnunar heimsótti Vernd

Nýr forstjóri Fangelsismálastofnunar heimsótti Vernd

Nýr forstjóri Fangelsismálastofnunar heimsótti Vernd

Ragna Bjarnadóttir, nýr forstjóri Fangelsismálastofnunar, heimsótti áfangaheimilið Vernd í morgun, 3. júní, eftir fá daga í embætti. Tilgangur heimsóknarinnar var að kynna sér starfsemi Verndar, ræða við starfsfólk og taka þátt í húsnefndarfundi heimilisins.

Ragna er fyrsta konan sem gegnir embætti forstjóra Fangelsismálastofnunar og jafnframt fyrsti nýi forstjóri stofnunarinnar í átján ár. Heimsókn hennar til Verndar undirstrikar mikilvægi þess samstarfs sem hefur um áratugaskeið verið milli Fangelsismálastofnunar og Verndar við að styðja einstaklinga á síðari stigum afplánunar og auðvelda endurkomu þeirra út í samfélagið.

Á fundinum kynnti Ragna helstu verkefni sem fram undan eru í fangelsismálum. Þar ber hæst fyrirhugaða byggingu nýs öryggisfangelsis að Stóra-Hrauni, sem verður fyrsta fangelsi sinnar tegundar á Íslandi. Framkvæmdir við undirbúning verkefnisins eru hafnar og er stefnt að því að fyrsta áfanga verði lokið á næsta áratug. Jafnframt er unnið að fjölgun afplánunarrýma og öðrum aðgerðum til að bregðast við langvarandi álagi á fangelsiskerfið.

Ragna ræddi einnig nýlegar lagabreytingar sem heimila reynslulausn erlendra fanga sem sæta brottvísun að afplánuðum þriðjungi refsitíma. Markmið breytinganna er að draga úr þrýstingi á fangelsiskerfið og nýta afplánunarrými betur. Áhersla var lögð á að breytingarnar væru hluti af stærri heildarsýn um skilvirkara fullnustukerfi og bættar aðstæður innan fangelsiskerfisins.

Vernd fagnar heimsókn nýs forstjóra Fangelsismálastofnunar og væntir áframhaldandi góðs samstarfs um þau sameiginlegu markmið að stuðla að farsælli endurhæfingu, draga úr endurkomu í afbrot og efla mannúðlega framkvæmd refsinga á Íslandi.

 

 

Þráinn Farestveit