Fangaprestur þjóðkirkjunnar
Núverandi fangaprestur er Sigrún Óskarsdóttir.
Sérstakur fangaprestur hefur verið starfandi frá árinu 1970. Starfsvettvangur fangaprests eru fangelsin og þjónusta við fanga, aðstandendur þeirra og aðra er láta sig eitthvað varða um hag þeirra.
Fangelsin á Ísland eru fimm að tölu: Litla-Hraun, fangelsið að Sogni í Ölfusi, Hólmsheiðarfangelsið í Reykjavík, Kvíabryggja á Snæfellsnesi og fangelsið á Akureyri. Um 160 fangar eru í afplánun hverju sinni en það er þó breytilegt.
Fangelsin á Sogni og Kvíabryggju eru svo kölluð opin fangelsi sem þýðir að fangar hafa netaðgang en þó takmarkaðan, geta unnið út frá fangelsinu o.s.frv.
Kvennafangelsið er í Hólmsheiðarfangelsinu og þar er einnig gæsluvarðhaldsfangelsi og móttökufangelsi. Konur eru um 5% af fangafjöldanum. Meðalaldur fanga er á bilinu 20-35 ár.
Fangaprestur fer reglulega í öll fangelsin. Þar sem Litla-Hraun er fjölmennasta fangelsið liggur það í augum uppi að fangaprestur fer oftar þangað en í önnur fangelsi.
Náið samstarfsfólk fangaprests á vettvangi eru fangaverðir. Þeirra starf er þýðingarmikið og gerir kröfur um sterkar hliðar í mannlegum samskiptum.
Þá gefur fangaprestur út lítið blað sem heitir Á leiðinni. Það kemur út mánaðarlega og er dreift til allra fanga og starfsmanna fangelsiskerfisins. Í þessu litla blaði má gjarnan finna hugleiðingu, lærdómsríkar smásögur og bænir.
Starfsaðferð fangaprests hefur verið sú að kynnast föngum persónulega. Hann fer um fangelsin og heimsækir fangana á klefa þeirra, opin fangarými og á vinnustöðum þeirra. Talar ýmist við þá einslega eða í hóp. Margir fangar vilja láta biðja fyrir sér og sínum. Fangaprestur spjallar bæði á léttum nótum og alvarlegum við þá á kaffistofum og annars staðar í fangelsunum. Fangar eins og aðrir eru ætíð tilbúnir til að ræða málin.
Fangaprestur hefur um hönd helgihald í fangelsunum, guðsþjónustur og samkomur. Þær eru yfirleitt vel sóttar. Stundum skipuleggur fangaprestur viðburði í fangelsum með öðrum eða að eigin frumkvæði. Öll tilbreyting er vel þegin innan fangelsanna.
Aðstandendur og börn fanga eru hópar sem eru mjög svo viðkvæmir og í raun ósýnilegir. Margir fangar eiga börn. Stundum vita þau hvar pabbi (eða mamma) er og stundum ekki. Reynt hefur verið að starfrækja aðstandendafélag fanga en það hefur gengið misjafnlega.
Kjörorð þjónustu þjóðkirkjunnar við fanga hafa ætíð verið orð Jesú Krists: „...í fangelsi var ég og þér komuð til mín.“ (Matteusarguðspjall 25.36).
Skrifstofuaðstaða fangaprests er í Háteigskirkju í Reykjavík.