Afstaða – Rödd manneskjunnar innan múranna.
Í 20 ár hefur Afstaða Félag fanga verið órjúfanlegur þátttakandi í baráttu fyrir mannréttindum fanga og virðingu fyrir reisn þeirra sem hafa gengið í gegnum fangelsiskerfið. Félagið stendur fyrir stöðugri, hugrakkri og mannúðlegri nálgun – þar sem lausnin felst í að hlusta, skilja og styðja. Vernd fangahjálp og Afstaða félag fanga hafa í tvo áratugi átt farsælt samstarf, byggt á gagnkvæmu trausti, virðingu og sameiginlegri sýn. Vernd veitir úrræði, stuðning og skjól þegar einstaklingar stíga sín fyrstu skref út úr afplánun. Félag fanga leggur rödd og reynslu til málanna, byggða á raunverulegri nálægð við veruleika fanga. Saman hafa þessi tvö öfl mótað vettvang þar sem bæði mannúð og framkvæmd fara saman – þar sem einstaklingar fá ekki bara þjónustu, heldur líka trú á sjálfan sig. Þetta samstarf hefur borið ávöxt í fjölmörgum myndum: einstaklingsbundnum sigrum, þroskandi samræðu við opinbera aðila, opinberum umsögnum og baráttu fyrir réttarbótum – og í ekki síst sýnileika og virðingu fyrir röddum og reynslu innan fangelsiskerfisins. Áherslur Afstöðu – Von, virðing og endurreisn. Að meðferð og endurhæfing sé og verði hið trygga afl þeirra sem svo sannanleg þurfa á að halda. Á þessum 20 árum hefur Félag fanga staðið fast við grunngildi sín: Allir einstaklingar geta lært, vaxið og snúið við blaðinu. Refsing felur ekki í sér afsögn frá samfélaginu – heldur kall á tengingu við það. Fangelsi eiga ekki að vera endastöð – heldur upphaf að nýrri leið. Félagið hefur verið vettvangur þar sem þeir sem hafa setið inni finna hlustun, samstöðu og styrk
Manneskjan í forgrunni
Í öllu starfi félagsins skín í gegn trúin á manneskjuna. Hún birtist í viðtölum, umsögnum, samfélagsmiðlum og baráttunni fyrir bættri stöðu þeirra – en einnig í kyrrlátum samtölum, stuðning í erfiðum aðstæðum og hugrekki til að tala þar sem þögn hefur ríkt.
Horft til framtíðar – áfram saman
Við hjá Vernd lýsum djúpu þakklæti og virðingu fyrir seiglu og því óþrjótandi starfi sem Afstaða hefur unnið. Það er sjaldgæft, dýrmætt og ástæða til að fagna því – ekki aðeins fyrir árangurinn, heldur fyrir þá sýn sem félagið hefur haldið á lofti.
,,Að hver manneskja – sama hvar hún hefur verið – eigi rétt á reisn, virðingu og raunhæfu tækifæri“. Þráinn Farestveit