Fangelsið

Kvíabryggja

Nesjavallaleið 9
110 Reykjavík
Sími: 520 5060
Netfang: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Forstöðumaður fangelsisins er Halldór Valur Pálsson. Hann er einnig forstöðumaður Fangelsisins Sogni og Hólmsheiði.
Fangelsið Litla-Hrauni var stofnað 8. mars 1929 og hefur starfað samfellt síðan. Fangelsið er lokað fangelsi með 9 deildir sem rúma allt að 87 karlfanga. Þar starfa alls 57 starfsmenn, fangaverðir sem sinna almennri fangavörslu og verkstjórn, auk skrifstofufólks, meðferðarfulltrúa, starfsmanna í eldhúsi og verslun.
Ein fangadeildin er rekin sem sérstök meðferðardeild þar sem fer fram vímuefnameðferð undir umsjón meðferðarfulltrúa og sálfræðinga.

Móttaka sendinga til fanga er frá kl. 08:00 - 16:00 mánudaga - fimmtudaga og frá kl. 08:00 - 12:00 á föstudögum.
Í fangelsinu eru 6 vinnustaðir fyrir fanga sem sinna fjölbreyttum verkefnum. Hægt er að panta númeraplötur og aðrar vörur sem framleiddar eru á Litla-Hrauni með því að senda póst á netfangið: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Vinna fanga

Verkefni í fangavinnu eru eftirfarandi:

  • Bílaþvottur
  • Bílnúmera- og skiltagerð
  • Flokkun málma til endurvinnslu
  • Járnsmíði
  • Matseld á deildum
  • Trésmíði
  • Viðgerðir á stikum fyrir Vegagerðina
  • Viðhald
  • Þrif og umhirða á sameiginlegum rýmum og lóð fangelsisins
  • Þvottahús
  • Öskjugerð fyrir skjalasöfn
  • Önnur verkefni til lengri og skemmri tíma

Nám
Fangar geta stundað nám í fangelsinu en á staðnum er boðið upp á nám á framhaldsskólastigi í samvinnu við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Kennslustjóri og námsráðgjafi eru með starfsstöð í fangelsinu. Dæmi eru um að fangar stundi fjarnám við aðra menntaskóla og einnig við háskóla. Nánari upplýsingar hjá námsráðgjafa í síma 825-6465.

Meðferðarstarf
AA samtökin eru með reglulega fundi í fangelsinu.


Hönnunarsaga
Arkís arkitektar ehf. hlutu fyrstu verðlaun í hönnunarsamkeppni en niðurstöður hennar voru kynntar snemmsumars 2012. Höfundar tillögunnar eru Björn Guðbrandsson og Arnar Þór Jónsson arkitektar. Ráðgjafar voru Birgir Teitsson, Egill Guðmundsson og Friðrik Friðriksson arkitektar.

Efnt var til samkeppni um listskreytingar og hlutu fyrstu verðlaun þær Anna Hallin og Olga S. Bergmann. Tillaga þeirra heitir Arboretum - trjásafn og er margþætt listaverk, þyrping 9 tegunda trjáa og "fuglahótel" með tilheyrandi fuglahúsum sem unnin eru í samvinnu við tréverkstæðið á Litla-Hrauni. Hægt er að fylgjast með fuglalífinu í sjónvarpi í fangelsinu.

Framkvæmdir
Fyrsta skóflustungan var tekin 4. apríl 2013. Jarðvegsframkvæmdir hófust með fyrstu skóflustungunni í kjölfar útboðs og síðar um vorið var bygging fangelsisins boðin út. Samið var við ÍAV um byggingu hússins en fyrirtækið átti lægsta tilboð af þremur sem bárust.

Ákveðið var að fangelsið yrði vottað samkvæmt alþjóðlega umhverfisvotturnarkerfinu BREEAM og fellur það sérstaklega vel að öllum 10 meginreglum svokallaðs Nordic Built sáttmála. Með þeirri hugmyndafræði er við sköpun á manngerðu umhverfi leitast við að auka lífsgæði, nýta sjálfbærni, staðbundnar auðlindir og byggja á norrænni hönnunarhefð eins og hún gerist best.

Fyrstu fangar hefja afplánun á Hólmsheiði
15.11.2016

Í dag hefst formlegur fangelsisrekstur í nýju fangelsi á Hólmsheiði þegar kvennadeild fangelsisins verður tekin í notkun. Verða þá þær konur sem afplána þurfa í lokuðu fangelsi fluttar í nýja fangelsið.
Í fangelsinu eru 56 fangapláss. Til að byrja með verður aðeins kvennadeild tekin í notkun en á næstu dögum mun Fangelsismálastofnun hefja boðun dómþola til afplánunar í nýja fangelsið og taka fleiri deildir í notkun. Að lokum mun gæsluvarðhaldseinangrun flutt úr Fangelsinu Litla-Hrauni í nýja fangelsið. Gert er ráð fyrir að það verði gert í upphafi næsta árs.

Fangelsismálastofnun bindur miklar vonir við að starfsmönnum og vistmönnum í nýju fangelsi líði vel á nýjum stað. Við hönnun fangelsisins var öryggi fanga og starfsmanna haft að leiðarljósi ásamt því að leggja áherslu á mannúðlega afplánun fanga. Rúmlega 50 ára sögu byggingasögu fangelsis í Reykjavík er nú lokið.

Fyrsta skóflustunga að nýju fangelsi á Hólmsheiði tekin 4. apríl 2013
5.4.2013
Í gær 4. apríl 2013 tók Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra fyrstu skóflustunguna að nýju fangelsi á höfuborgarsvæðinu. Fjöldi gesta var viðstaddur þennan merka áfanga í fangelsissögu landsins en stefnt hefur verið að því að byggja fangelsi á höfuðborgarsvæðinu í tugi ára
Lesa meira

Hönnunarsamkeppni fangelsis á Hólmsheiði í Reykjavík
7.1.2012

Framkvæmdasýsla ríkisins, f.h. Innanríkisráðuneytisins býður til opinnar hönnunarsamkeppni (framkvæmdasamkeppni) um byggingu nýs fangelsis á Hólmsheiði í Reykjavík.

Um er að ræða nýtt gæsluvarðhalds- og móttökufangelsi með deild fyrir kvenfanga, aðstöðu fyrir afplánun skemmri fangelsisrefsinga og vararefsinga á Hólmsheiði í Reykjavík. Fangelsisbyggingin verður með 56 fangarýmum og u.þ.b. 3.700 m2 að stærð. Sjá nánari upplýsingar á vef Ríkiskaupa (Opnast í nýjum vafraglugga) .

Lesa meira

Hönnunarsamkeppni um fangelsisbyggingu að hefjast

4.1.2012

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra og Logi Már Einarsson, formaður Arkitektafélags Íslands, undirrituðu í dag samning um útfærslu hönnunarsamkeppni um byggingu nýs fangelsis á Hólmsheiði í Reykjavík. Samkeppnin verður auglýst á erópska efnahagssvæðinu og verður með þeim hætti að þeir sem uppfylla hæfisskilyrði geta tekið þátt. Samkeppnisgögn verða afhent frá 9. janúar nk. og er gert ráð fyrir að niðurstaða dómnefndar, sem skipuð var vegna samkeppninnar, liggi fyrir í byrjun sumars. Þá taka við samningar við hönnunarteymið sem verður fyrir valinu og er stefnt að því að framkvæmdir við nýtt fangelsi geti hafist í lok þessa árs.

Sjá nánar (Opnast í nýjum vafraglugga) .

 

 

 

820 Eyrarbakka
Sími: 520 5900
Netfang: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Forstöðumaður fangelsisins er Halldór Valur Pálsson. Hann er einnig forstöðumaður Fangelsisins Sogni og Hólmsheiði.
Fangelsið Litla-Hrauni var stofnað 8. mars 1929 og hefur starfað samfellt síðan. Fangelsið er lokað fangelsi með 9 deildir sem rúma allt að 87 karlfanga. Þar starfa alls 57 starfsmenn, fangaverðir sem sinna almennri fangavörslu og verkstjórn, auk skrifstofufólks, meðferðarfulltrúa, starfsmanna í eldhúsi og verslun.
Ein fangadeildin er rekin sem sérstök meðferðardeild þar sem fer fram vímuefnameðferð undir umsjón meðferðarfulltrúa og sálfræðinga.

Móttaka sendinga til fanga er frá kl. 08:00 - 16:00 mánudaga - fimmtudaga og frá kl. 08:00 - 12:00 á föstudögum.
Í fangelsinu eru 6 vinnustaðir fyrir fanga sem sinna fjölbreyttum verkefnum. Hægt er að panta númeraplötur og aðrar vörur sem framleiddar eru á Litla-Hrauni með því að senda póst á netfangið: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Vinna fanga
Verkefni í fangavinnu eru eftirfarandi:

  • Bílaþvottur
  • Bílnúmera- og skiltagerð
  • Flokkun málma til endurvinnslu
  • Járnsmíði
  • Matseld á deildum
  • Trésmíði
  • Viðgerðir á stikum fyrir Vegagerðina
  • Viðhald
  • Þrif og umhirða á sameiginlegum rýmum og lóð fangelsisins
  • Þvottahús
  • Öskjugerð fyrir skjalasöfn
  • Önnur verkefni til lengri og skemmri tíma

    Nám
    Fangar geta stundað nám í fangelsinu en á staðnum er boðið upp á nám á framhaldsskólastigi í samvinnu við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Kennslustjóri og námsráðgjafi eru með starfsstöð í fangelsinu. Dæmi eru um að fangar stundi fjarnám við aðra menntaskóla og einnig við háskóla. Nánari upplýsingar hjá námsráðgjafa í síma 825-6465.

Meðferðarstarf

AA samtökin eru með reglulega fundi í fangelsinu.

Fangelsið Akureyri, Lokað

 

 

Fangelsið Akureyri var starfrækt í húsnæði lögreglunnar á Akureyri frá árinu 1978. En fangelsinu var lokað á haustmánuðum 2020.

 

Fangelsið Kvíabryggju

Kvíabryggja
350 Grundarfirði
Sími: 520 5980
Netfang: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.


Forstöðumaður fangelsisins er Birgir Guðmundsson.

Fangelsið er staðsett á jörðinni Kvíabryggju á Snæfellsnesi og hefur verið starfrækt frá árinu 1963. Frá árinu 1955 var rekið þar vinnuhæli fyrir feður sem skulduðu barnameðlög. Á árinu 2007 var byggt við fangelsið og nú er hægt að hýsa þar 23 fanga. Fangelsið er skilgreint sem opið fangelsi, þar eru hvorki rimlar fyrir gluggum né heldur er svæðið öðru vísi afgirt en venjuleg sveitabýli. Í fangelsinu er rúmgóð setustofa, eldhús, borðstofa og góður æfingasalur. Fangar sjá um matseld. Góð aðstaða er til vinnu og líkamsræktar.

Fangar í fangelsinu þurfa að vera tilbúnir til að takast á við vímuefnavanda sinn og taka þátt í endurhæfingaráætlun og stunda vinnu eða nám.
Í fangelsinu starfa átta starfsmenn, forstöðumaður, skrifstofumaður og sex fangaverðir á sólarhringsvöktum. Vaktirnar eru 12 klukkustundir, dagvaktir frá kl. 08:00-20:00 og næturvaktir frá kl. 20:00 - 08:00.

Vinna fanga
Verkefni í fangavinnu eru eftirfarandi:

  • Bústörf m.a. við sauðfjárbúskap
  • Viðhald
  • Þrif
  • Tilfallandi verkefni

    Nám

Í fangelsinu geta fangar stundað fjarnám undir handleiðslu námsráðgjafa. Nánari upplýsingar veitir námsráðgjafi í Fjölbrautaskóla Snæfellinga.



Fangelsið Sogni , 801 Selfossi

Fangelsið er skilgreint sem opið fangelsi en það felur í sér að engar girðingar eða múrar afmarka fangelsið og því þurfa fangar sem vistast þar að hegða sér á ábyrgan hátt og bera virðingu fyrir þeim reglum sem þar gilda. Aðbúnaður í fangelsinu er góður. Á Sogni er unnið eftir sérstaki umhverfisstefnu sem fangar taka virkan þátt í.Gert er ráð fyrir að vista 20 fanga á Sogni. Auk 18 herbergja eru þar viðtalsherbergi, setustofa, eldhús og borðstofa.
Föngum er ætlað að stunda vinnu eða nám og við komu í fangelsið er hverjum og einum gert að skrifa undir samkomulag um vistunina. Fangar sjá sjálfir um eldamennsku, þrif, þvotta og annað er viðkemur almennu húshaldi og er markmiðið m.a. að þjálfa þá í lífsleikni. Þannig er lagður grunnur að því að undirbúa fanga til að koma út í samfélagið að nýju.

Starfsmenn: Við Fangelsið ð Sogni starfa samtals 8 fangaverðir undir stjórn Einars Vals Oddssonar, varðstjóra. Forstöðumaður er Margrét Frímannsdóttir.

Vinna fanga: Fangar vinna við eldamennsku, þrif, þvotta og annað sem viðkemur almennu húshaldi. Þar að auki störf er tengjast viðhaldsverkefnum innandyra og snyrtingu útivistarsvæðis, s.s. málningarvinnu á klefum, garðrækt, garðsláttur ofl. Unnið er eftir sérstakri umhverfisstefnu sem fangar taka virkan þátt í. Þá er stefnt að því að fangar fari í sérstök verkefni undir eftirliti fangavarðar.

Samkvæmt reglugerð um fullnustu refsinga nr. 961/2005 skal Fangelsismálastofnun setja gjaldskrá um þóknun fyrir vinnu og nám, upphæð dagpeninga fanga og greiðslufyrirkomulag. Þóknun fyrir hverja klukkustund fer eftir eðli starfs. Fangi í námi skal fá þóknun fyrir hverja kennslustund, en þó ekki fyrir fleiri kennslustundir en fimm á dag. Þóknun og dagpeningar skulu greiddir eftir á og að lágmarki á tveggja vikna fresti. Gjaldskráin skal endurskoðuð árlega.

Símanotkun: Fangar hafa nokkuð frjálsan aðgang að síma. Þá getur fangi notað síma til að ná í opinbera aðila í samræmi við 36. gr. laga um fullnustu refsinga nr. 49/2005 sbr. reglugerð um fullnustu refsinga nr. 961/2005.

Heimsóknir: Heimsóknir nánustu vandamanna eru leyfðar um helgar. Fangi getur sótt um heimsóknarleyfi fyrir aðra aðila en nánustu vandamenn á þar til gerðu eyðublaði í fangelsinu. Eru leyfin háð samþykki yfirmanna fangelsisins.

Útivera og tómstundir: Samkvæmt 39. gr. laga um fullnustu refsinga nr. 49/2005 á fangi rétt á útiveru og að iðka tómstundastörf, líkamsrækt og íþróttir í frítíma eftir því sem aðstæður í fangelsi leyfa í að minnsta kosti eina og hálfa klukkustund á dag nema það sé ósamrýmanlegt góðri reglu og öryggi í fangelsi. Föngum er leyfilegt að nýta frítíma sinn til útivistar meðan bjart er sumar sem vetur og fara um takmarkað svæði í næsta nágrenni við húsið.

Subcategories