|
||||||||||||||||||||
|
|
Heimilisreglur á Laugateig 19
1. Áfangaheimilið er rekið fyrir þá sem eru að vinna að því að koma undir sig fótunum í samfélaginu og/eða til þess að koma í veg fyrir að viðkomandi einstaklingur tapi stöðu sinni í þjóðfélaginu. Staðurinn er heimili, ekki stofnun, þar sem tillitsemi og virðing fyrir öðrum einstaklingum er í fyrirrúmi. Dvöl er háð samþykki húsnefndar.
2. Gerð er krafa um að þeir sem koma til afplánunar hafi útvegað sér viðurkennda vinnu fyrir komu á heimilið, séu í viðurkenndri meðferð eða námi (heilsdagsskóla). Leggja þarf fram skriflega staðfestingu fyrir vinnu eða skólagöngu. Ekki er heimilt að taka sér frí úr vinnu eða skóla á meðan afplánun stendur. Eftirlit er haft með mætingu og ástundun bæði innan og utan heimilis.
3. Heimilismenn búa um rúm sín á hverjum degi og halda herbergjum sínum hreinum og snyrtilegum. Þeir taka þátt í að halda sameiginlegu rými innanhúss hreinu undir verkstjórn forstöðumanns og matráðsmanns. Á sama hátt skulu heimilismenn hirða lóð hússins á sumrin og moka snjó af göngusvæði frá götu að dyrum og af bílastæði að vetrarlagi.
4. Móttaka nýrra vistmanna á Vernd er alltaf fyrir kl 21.00 á sunnudögum og 18.00 á miðvikudögum. Heimilismenn skulu ætíð vera inni í húsinu á tímabilinu frá kl. 18 til 19 og frá kl 23 til 07 árdegis virka daga, laugardaga og sunnudaga frá 21 til 07. Brot á útivistarreglum verður tilkynnt samstundis sem strok úr refsivist. Heimsóknir eftir kl 23 eru með öllu óheimilar. Þá skal heimilið komið í ró. Næturgisting gesta er með öllu óheimil. Í sérstökum tilvikum getur foreldri fengið leyfi forstöðumanns til þess að hafa ungt barn sitt hjá sér. Skylt er að heimilismenn láti alltaf starfsmann vita um komu sína í húsið.
5.Heimilismmönnum er skylt að mæta í viðtöl hjá framkvæmdastjóra, forstöðumanni, áfengisráðgjafa, félagsráðgjafa eða öðrum sem veita ráðgjöf á vegum Verndar sé þess óskað. Einnig er þeim skylt að fara að fyrirmælum húsnefndar er varðar ráðgjöf sé þess óskað. Brot á reglum eða fyrirmælum getur varðað brottvikningu úr húsinu.
6. Heimsóknir á heimili Verndar skulu vera takmarkaðar af tillitssemi við heimilismenn. Heimsóknir eru bannaðar frá 23.00 til 17.30
7. Allir heimilsmenn mæta til húsfundar þegar til hans er boðað sem er vikulega kl. 18.20 sem og aðra húsfundi sem forstöðumaður boðar til og gæta trúnaðar um allt sem þar fer fram.
8. Borðhald hefst kl. 17.45 nema á laugardögum og sunnudögum þá sér hver um sig sem og á lögbundnum frídögum. Heimilismenn ganga vel frá eftir sig í eldhúsi.
9. Heimilsmenn skulu sækja AA fundi vikulega. Sá sem grunaður er um áfengis eða aðra vímuefnaneyslu, eða vörslu vímuefna, er tafarlaust vikið úr húsinu. Sama gildir um refsiverðan verknað. Lyfjanotkun skal vera með vitund forstöðumanns.
10. Heimilið og starfsmenn þess eru ekki ábyrgir fyrir persónulegum eigum heimilismanna. Heimilið leggur til alla nauðsynlega heimilismuni eins og rúm, fataskáp, borð og stól og er algjörlega óheimilt að koma með húsmuni með sér. Sjónvarp er í sameiginlegu rými en heimilismönnum er heimilt að hafa sjónvarp í eigin herbergi allt að 21” Gæludýr eru bönnuð í húsinu.
11. Greiða skal viðverugjald fyrirfram til forstöðumanns. Greitt viðverugjald er ekki endurgreitt.
12. Brot á reglum eða fyrirmælum forstöðumanns, framkvæmdarstjóra, matráðsmanns eða formanns Verndar getur varðað brottvikningu úr húsinu.
Samþykkt í stjórn Verndar 24. sept 2009
|
|||||||||||||||||||
Vernd, Laugateigur 19, 105 Reykjavík, Sími 562 3003 - Bréfsími 562 3004 - Vernd@vernd.is |
||||||||||||||||||||